Einstaklingsmál

 

Talsmanni neytenda er lögum samkvæmt ekki ætlað að taka til meðferðar ágreining milli neytenda og seljenda. Í meðförum Alþingis var þetta áréttað með því að bæta inn að tillögu meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis svohljóðandi ákvæði, 2. mgr. 7. gr. laganna:

 

„Talsmaður neytenda tekur ekki til meðferðar ágreining milli neytenda og seljenda, en honum ber að leiðbeina þeim sem til hans leita með slík mál um hvaða leiðir eru færar, m.a. innan stjórnsýslunnar og hjá dómstólum.“

Þetta er áréttað með eftirfarandi skýringum í nefndaráliti meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar:

 

„Talsmaður neytenda mun geta tekið mál til meðferðar eftir kvörtun eða að eigin frumkvæði en honum er ekki ætlað að taka stjórnvaldsákvarðanir í verkefnum sem falin eru stjórnvöldum samkvæmt lögum né heldur er honum ætlað að leysa úr ágreiningi kaupanda og seljanda um einstök atriði eða tiltekin kaup. Talsmanni neytenda er frekar ætlað að taka við erindum frá neytendum, gefa út álitsgerðir og hafa frumkvæði að úrbótum og annast þannig hagsmunagæslu fyrir neytendur.“

 


Með væntanlegu Leiðakerfi neytenda hyggst talsmaður neytenda á skilvirkan og þjónustuvænan hátt sinna þeirri leiðbeiningarskyldu gagnvart neytendum sem löggjafinn hefur falið honum að veita um færar leiðir til þess að leysa úr ágreiningsmálum milli neytenda og seljenda vöru og þjónustu.
 



Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli