Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, hefur tilnefnt þrjá fulltrúa í ráðgjafarráð embættisins fyrir árið 2007.
Ráðgjafarráð er nýmæli til reynslu meðan embættið er að þróast og er ætlað að veita talsmanni neytenda aðhald og stuðning enda er hann lögum samkvæmt sjálfstæður í störfum. Sjá nánar verklagsreglur ráðgjafarráðs. Í ráðgjafarráði fyrsta árið sitja Brynhildur Pétursdóttir, ritstjóri Neytendablaðsins, Guðrún Johnsen, lektor við Háskólann í Reykjavík, og dr. Ian Watson, aðjúnkt og alþjóðafulltrúi.
Brynhildur Pétursdóttir er stúdent frá Menntaskólanum við Sund 1989, nam innanhúshönnun á Ítalíu 1991-1993 og tók próf úr Leiðsöguskóla Íslands með ítölsku sem sértungumál 1994. Þá lauk Brynhildur BA-prófi í viðskiptatungumálum frá Syddansk Universitet (Háskólinn í Óðinsvéum) 2001. Brynhildur hefur verið starfsmaður Neytendasamtakanna frá janúar 2002 og vinnur m.a. við kvörtunarþjónustuna, verðkannanir, gæðakannanir, fréttaskrif á heimsíðuna auk þess að ritstýra Neytendablaðinu sem kemur út fjórum sinnum á ári. Brynhildur hefur setið í stjórn Neytendasamtakanna frá 2006 og situr jafnframt í umhverfisfræðsluráði fyrir hönd samtakanna. Brynhildur hefur einnig verið safnstjóri Nonnahúss á Akureyri 2001.
Guðrún Johnsen er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1993 og lauk BA-prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands 1999, og MA-prófum í hagnýtri hagfræði frá University of Michigan, Ann Arbor, 2002 og í tölfræði frá sama háskóla 2003. Í námi sínu, rannsóknum og kennslu hefur Guðrún einkum lagt áherslu á kerfishagfræði og leikjafræði. Guðrún starfaði hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington DC 2004-6 og hefur einnig starfað hjá RAND Corporation, Santa Monica, University of Michigan, William Davidson Institute, Seðlabanka Íslands, Fjárfestingabanka atvinnulífsins og Norræna fjárfestingabankanum.
Ian Watson hefur verið ferðahandbókahöfundur í nær 20 ár og hefur
skrifað greinar um neytendamál í Morgunblaðinu og Grapevine. Hann er
með BA-próf í málvísindum frá Harvard-háskóla og Ph.D. í félagsfræði frá
Rutgers University. Doktorsritgerð hans fjallar um staðla og stöðlun.
Hann hefur verið aðjúnkt við Háskólann á Bifröst síðan 2005 og kennir
þar leikjafræði vorið 2007. Hann vinnur einnig fyrir hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands sem verkefnastjóri alþjóðamála.